Reykjavíkurborg hefur samþykkt breytingar sem leiða til uppsagna 86 starfsmanna. Af þeim fá 32 boð um ný eða breytt störf en 54 fá ekki áframhaldandi starf.Þetta eru ekki fyrstu hagræðingaraðgerðirnar frá því ný borgarstjórn tók við völdum í lok maí. Og í raun ættu hagræðingaraðgerðir þeirra flokka sem mynda meirihluta í borgarstjórn, Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Viðreisnar, ekki að koma neinum á óvart.Í lok nóvember í fyrra kynnti Framsóknarflokkurinn, á blaðamannafundi, hagræðingartillögur sínar í borginni og lagði meðal annars til að miðstöðvum borgarinnar yrði fækkað í tvær og sala á Landsneti kláruð.Þá talaði Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins, ítrekað um hagræðingu í rekstri borgarinnar í sinni kosningabaráttu.Og að kosningum loknum sagði hún