Alls söfnuðust 306,5 milljónir í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka sem var hlaupið á menningarnótt.Hæstu fjárhæðinni safnaði hlauparinn Eiður Rafn Gunnarsson, 5,3 milljónum. Hann hljóp maraþon til styrktar Píeta-samtökunum.„Ég lenti í veikindum þegar ég var yngri, kvíðavandræðum, eins og margir, sérstaklega ungir drengir, gera. [...] Eftir að maður lendir í einhverju svona, þótt það sé komið í baksýnisspegilinn, þá situr þetta eftir í manni,“ sagði hann við fréttastofu í síðustu viku.Samkvæmt Íþróttabandalagi Reykjavíkur eru styrkir fyrirtækja enn að berast og upphæðunum ber því að taka með einhverjum fyrirvara. Uppskeruhátíð áheitasöfnunarinnar fer fram síðar í haust og þá liggur endanleg upphæð fyrir.16.761 skráðu sig til leiks í ár en 14.758 fóru af stað í hlaupinu. Hér að neðan má sjá h