John Ratcliffe, forstjóri bandarísku leyniþjónustunnar (CIA), heimsótti Moskvu á þriðjudag til fundahalda, en þetta er fyrsta þekkta heimsókn hans til Rússlands sem yfirmaður CIA, að því er bandarískir fjölmiðlar greina frá. Tilgangur heimsóknarinnar var ekki ljós í fyrstu og hvorki CIA né Hvíta húsið veittu umsögn þegar fréttastofa AFP hafði samband. CBS News vitnaði í heimildarmenn sem þekkja til málsins...