Reykjavíkurborg hefur samþykkt breytingar sem leiða til uppsagna 86 starfsmanna. Af þeim fá 32 boð um ný eða breytt störf en 54 fá ekki áframhaldandi starf.Borgarráð samþykkti á aukafundi í dag tillögu borgarstjóra um breytingar á stjórnskipulagi velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs. Breytingarnar snerta tæplega 400 starfsmenn á sviðunum tveimur.Ný skipurit taka gildi 1. september og innleiðingu breytinganna á að vera lokið fyrir 1. janúar 2027. Hagræðing á ársgrundvelli er talin nema um 900 milljónum króna.Á meðal þeirra 54 starfsmanna sem fá ekki áframhaldandi starf eru 22 stöðugildi sem verða lögð niður þegar samningur Reykjavíkurborgar við ríkið vegna samræmdrar móttöku flóttamanna rennur út um áramót. LEGGJA NIÐUR MIÐSTÖÐVARNAR Miðstöðvar Reykjavíkurborgar – Vestur-, Norður-,