Skólahald hófst að nýju í grunnskólanum í Grindavík í dag. Skólinn var settur í morgun.„Það var mikil gleði og góð stemning í morgun og það var alveg dásamlegt að heyra í nemendum aftur í húsinu,“ segir Guðlaug Erlendsdóttir, skólastjóri leik- og grunnskóla Grindavíkur. Leikskólastarf hófst fyrr í mánuðinum.Hún segir undirbúninginn hafa verið strembinn og starfsfólk hlakkað mikið til að skólastarf hefðist.„Þetta er svona toppurinn hjá okkur, eftir alla vinnuna sem er búið að leggja í þetta. [...] Að sjá núna krakkana komna í hús, þetta er æði. Það er ólýsanlegt eiginlega.“Í skólann eru skráðir 26 nemendur, frá 1. bekk og upp í 10. bekk. Guðlaug vonast þó til að þeir verði fleiri í vetur. „Mín von er sú að nemendum okkar fjölgi jafnt og þétt í vetur. Við erum undirbúin undir það. “