Í fréttaskýringaþættinum Þetta helst var fjallað um stækkun þyrlupallsins í Surtsey og hvernig slíkar framkvæmdir eru skipulagðar með tilliti til náttúruverndar.Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum í síðustu viku umsókn Surtseyjarfélagsins um að stækka þyrlupallinn í Surtsey úr 36 fermetrum í um 100. Bærinn fer með skipulagsvald í eynni og skipulagsfulltrúa verður falið að gefa út framkvæmdaleyfi. Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum í síðustu viku umsókn Surtseyjarfélagsins um að stækka þyrlupallinn í Surtsey úr 36 fermetrum í 100. Jarðeðlisfræðingur segir það auka öryggi en að framkvæmdin sé vandasöm. MIKIÐ VANDAVERK AÐ LENDA Á ÞYRLUPALLINUM Surtsey er á heimsminjaskrá UNESCO og var friðlýst 1965 meðan gosvirkni var enn í gangi.