Í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag er sjónum beint að forsenduákvæði kjarasamninga og verðbólguþróun hér á landi. Á fimmtudaginn kemur í ljós hvort forsenduákvæði kjarasamninga haldi en þá birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir ágúst.Á fimmtudaginn kemur í ljós hvort forsenduákvæði kjarasamninga haldi en þá birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir ágúst. Hagfræðingur hjá Íslandsbanka spyr hvort frekar hefði átt að tengja forsenduákvæði við kaupmátt en verðbólgu. VERÐBÓLGA Á BREIÐUM GRUNNI Verðbólga hefur verið yfir fimm prósentum það sem af er ári og mældist 5,3 prósent í júlí. Samkvæmt nýbirtri spá Seðlabankans er talið að hún aukist enn frekar á næstu mánuðum og því allar líkur á að hún verði yfir 4,7 prósentum – sem virkjar forsenduákvæði kjarasamninga og opnar heimild til að seg