Kópavogsbær er ekki kominn með yfirsýn yfir hvernig grunnskólar bæjarins standa í samanburði við skóla annarra sveitarfélaga þrátt fyrir að matsferill hafi verið lagður fyrir grunnskólanema í stærðfræði og íslensku í vor.Þetta segir Karen Rúnarsdóttir, nýr formaður menntaráðs Kópavogsbæjar, í Síðdegisútvarpinu. STEFNUMÓTANDI AÐILAR EIGA AÐ GETA FYLGST MEÐ Matsferill er stöðu- og framvindupróf sem ætlað var að leysa gömlu samræmdu könnunarprófin af hólmi. Hann hefur verið í þróun í árabil en síðast voru samræmd könnunarpróf lögð fyrir grunnskólabörn á Íslandi árið 2021.Á vefsíðu Miðstövar menntunar og skólaþjónustu segir að auk þess að veita nemendum, foreldrum og kennurum skýrar upplýsingar um stöðu og framfarir grunnskólabarna, eigi matsferillinn að veita skólum, sveitarfélögum og menn