Hákon krónprins og Mette-Marit krónprinsessa heimsóttu Harald Noregskonung á ríkissjúkrahúsið í Ósló í dag. Hann hefur var lagður inn á sjúkrahús 17. ágúst vegna blóðleysis.Á sunnudag sagði norska hirðin heilsu hans hafi hrakað. Hann hefur verið á sýklalyfjum við bakteríusýkingu í blóði. Í gær kom fram að ástand hans væri stöðugt og að hann svaraði meðferð vel.Hugur Norðmanna er hjá Haraldi Noregskonungi og hlýjum kveðjum til hans hefur rignt inn hjá Norska ríkisútvarpinu. Hákon krónprins og Mette-Marit krónprinsessa heimsóttu hann á spítalann í dag.Hlýjum kveðjum til konungs hefur ringt inn til norska ríkissútvarpssins NRK. „Ég og dóttir mín sendum bestu mögulegu batakveðjur frá Þrándheimi,“ segir viðmælandi NRK þar í borg.„Mér þykir þetta sorglegt og ég vona að hann nái sér hratt aftur.