Bandarísk móðir hefur viðurkennt að hafa orðið börnum sínum þremur að bana í janúar 2023. Réttarhöldin yfir henni hafa staðið yfir í rúmar fjórar vikur og styttist í að málið verði lagt fyrir kviðdóm. Hann mun skera úr um hvort móðirin hafi verið sakhæf þegar hún banaði börnunum.