Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna, ætlar að ávarpa útifund sem Áfram Ísland hreyfingin heldur á Austurvelli síðdegis á fimmtudaginn.Í kynningu hreyfingarinnar Áfram Ísland segir að boðað sé til fundarins undir merkjum samstöðu og trúar á að framtíð Íslands sé best borgið utan Evrópusambandsins. Í ávarpi sínu á fimmtudag mun Katrín gefa upp afstöðu sína til þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardag og hvernig hún ætli að kjósa.Auk Katrínar verða meðal ræðumanna þær Auður Eir Vilhjálmsdóttir, fyrrverandi prestur, Sigríður María Egilsdóttir, fyrrverandi varaþingmaður Viðreisnar, og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrverandi ráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Einnig taka til máls fulltrúar X-nei, ungs fólks gegn ESB.