Hátt í 90 sagt upp vegna skipulagsbreytinga hjá Reykjavíkurborg

Hátt í 90 manns verður sagt upp vegna umfangsmikilla skipulagsbreytinga hjá Reykjavíkurborg, samkvæmt heimildum fréttastofu. Haldinn var aukafundur í borgarráði í morgun. Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs staðfestir að þar hafi verið ræddar umfangsmiklar stjórnskipulagsbreytingar sem muni hafa áhrif á störf hjá borginni.Í frétt Vísis segir að skipulagsbreytingar tengist meðal annars svæðismiðstöðvum borgarinnar en þær eru fjórar. Eins segir að uppsagnir tuga starfsmanna hjá bæði velferðarsviði og skóla- og frístundasviði borgarinnar hafi verið teknar fyrir á fundinum.Samkvæmt heimildum fréttastofu stendur til að leggja niður að minnsta kosti tvær þessara svæðismiðstöðva og sameina starfsemina. Þessar uppsagnir bætast við uppsagnir skólaliða sem greint var frá í gær. Að minnsta kosti 1
Hátt í 90 sagt upp vegna skipulagsbreytinga hjá Reykjavíkurborg

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd