Mikil spenna ríkir um úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB-aðildarviðræður á laugardag. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu fyrir Vísi er mjög mjótt á munum. 51,3 prósent þeirra sem hafa tekið afstöðu segjast ætla að merkja við já á kjörseðlinum en 48,7 prósent nei.8,5 prósent eru óákveðin og 3,4 prósent neita að svara.Þetta er minni munur en í fyrri könnunum Maskínu fyrir Vísi sem sýndu 52,2 prósenta stuðning við ESB-viðræður 13. ágúst og 53,0% stuðning í júlí.Niðurstöður könnunarinnar voru birtar í upphafi Pallborðsins á Vísi. Þar takast á þau Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Jónas Hagan Guðmundsson, einn stofnenda Já til að sjá, Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris Creations.Samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup, sem var bi