Banda­rísk her­flug­vél í Moskvu vekur furðu

Bandarískri herþotu var í morgun lent á Vnukovo-flugvellinum í Moskvu. Um er að ræða Boeing C-17 Globemaster III sem notuð er til þungaflutninga. Talsmaður forseta Rússlands, sagðist ekki hafa neinar upplýsingar um flugvélina í morgun og að ekki stæði til að funda með bandarískum erindrekum. Flugferðin hefur því vakið töluverða furðu og athygli.
Banda­rísk her­flug­vél í Moskvu vekur furðu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd