Lögreglan í Vestmannaeyjum biðlar til þeirra sem standa nú að björgun á lundapysjunni að fara varlega og leggja leið sína að svokölluðu sleppisvæði og standa þar fyrir innan hlaðna veggi. Þeim hafi borist í það minnsta tvær tilkynningar um að fólk hafi staðið fyrir utan veggina og litlu munað að illa færi.