Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna ætlar að ávarpa útifund sem Áfram Ísland hreyfingin heldur á Austurvelli síðdegis á fimmtudaginn.Hreyfingin Áfram Ísland segir að framtíð Íslands sé best borgið utan Evrópusambandsins og berst fyrir nei-i. Í ávarpi sínu á fimmtudag mun Katrín gefa upp afstöðu sína til þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardag og hvernig hún ætli að kjósa.