Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið fólk í tengslum við rannsókn sína á innbrotum í minkabú á höfuðborgarsvæðinu. Bylgjan greindi frá þessu í hádegisfréttum sínum. Þar er haft eftir lögreglu að fólk sem grunað er um að tengjast innbroti í Mosfellsdal hafi verið yfirheyrt. Enginn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Bylgjan hefur eftir Hildi Rún Björnsdóttur, lögreglufulltrúa hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, að rannsókn standi enn yfir og að málin séu ekki upplýst.Minkar sluppu úr búi í Mosfellsdal eftir að brotist var inn.RÚV / Ragnar Visage