Íranar segjast reiðbúnir að svara efnahagsaðgerðum sem Bandaríkjamenn boðuðu í gær. Kínverjar segja viðskiptaþvinganir gegn ríkjum með tengsl við Íran ólöglegar og að þeir ætli að gera allt til að verja sína hagsmuni.Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, boðaði umfangsmiklar efnahagsaðgerðir gegn Íran í gær og hótaði um leið refsiaðgerðum gegn fyrirtækjum og ríkjum með efnahagsleg tengsl við Íran. Þau fengju þó tækifæri til að slíta sambandinu áður en aðgerðirnar tækju gildi. ÍRANAR ÆTLA AÐ BREGÐAST VIÐ Íranar segjast reiðbúnir að bregðast við auknum efnahagsaðgerðum og viðskiptaþvingunum Bandaríkjanna. Efnahagsráðherra Írans sagði að þær myndu aðeins leiða til enn eins ósigurs Bandaríkjanna.Sérfræðingar hafa sett spurningamerki við aðgerðirnar og hvort þær geri sitt gagn, þar