„Menntamál á Íslandi hafa aldrei verið í verri höndum en þau eru í dag,” sagði grunnskólakennari þegar hann krafði Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra svara í tengslum við stöðu menntamála, boðaðar breytingar á einkunnagjöf og fleira á opnum fundi á Selfossi í gær. Ráðherra sagði ekki hægt að komast áfram með breytingar í skólum nema að hafa kennarana með.Már Ingólfur Másson, grunnskólakennari í Vallaskóla á Selfossi, kvaddi sér hljóðs á fundinum. „Ég er svolítið sár og svekktur yfir því að bæði Samfylkingin og Viðreisn, sem er ekki hér til að svara, hafa algjörlega skilað inn auðu í menntamálum. Menntamál á Íslandi hafa aldrei verið í verri höndum en þau eru í dag,” sagði Már.Hann benti á breytingar á einkunnakvörðum grunnskóla sem hafi verið boðaðar án þess að útskýra þær, boðað síma