Þúsundir skólakrakka snúa aftur í skólann í þessari viku um land allt. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur aukið umferðareftirlit sitt í kringum grunnskóla að sögn varðstjóra sem segir umferðina hafa þyngst mjög, enda skólastarf hafið á öllum skólastigum.