Boðað var til aukafundar í borgarráði Reykjavíkur í morgun. Samkvæmt heimildum fréttastofu snerist fundurinn um uppsagnir og skipulagsbreytingar hjá að minnsta kosti tveimur sérsviðum innan borgarkerfisins en enginn þeirra borgarfulltrúa sem fréttastofa náði tali af í morgun vildi tjá sig um málið.