Stefán Karl Kristjánsson, verjandi eins sakborninga í Dettifossmálinu, kallar eftir því að héraðssaksóknari leggi fram öll gögn málsins. Fyrirtaka fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag þar sem tekist verður á um það.Stefán Karl staðfestir að hann hafi lagt fram kröfu og telur að þegar lesin eru skjöl málsins sé augljóst að ekki hafi öll gögn í málinu verið lögð fram.Gögnin sem kallað er eftir tengjast fyrstu aðgerðum lögreglu. Ýmislegt bendi til þess að fylgst hafi verið með sakborningum töluvert áður en smyglið fór fram. Það sé mat Stefáns Karls að öll gögn eigi því að liggja fyrir frekar en að héraðssaksóknari velji hvaða gögn skipti máli.Alls eru fjórir ákærðir og snýst málið um smygl á rúmum 14 lítrum af amfetamínbasa til landsins með Dettifossi, gámaskipi Eimskips. Tveir eru taldir