Óska eftir friði til að syrgja á meðan rannsókn á andláti er ólokið

Lilja Rafney Magnúsdóttir, alþingismaður og formaður atvinnuveganefndar Alþingis, og fjölskylda hennar óska eftir friði til að syrgja í tengslum við rannsókn á andláti eiginmanns hennar í lok júlí á meðan rannsókn er ólokið.Eiginmaður Lilju Rafneyjar, Hilmar Oddur Gunnarsson vörubifreiðarstjóri og sjómaður frá Suðureyri, lést í lok júlí á heimili þeirra í Kópavogi 72 ára að aldri. Lilja Rafney greindi sjálf frá andláti eiginmannsins og að hann hefði glímt við veikindi síðustu árin eftir hjartaáfall og heilablóðfall.Eldri sonur Lilju Rafneyjar og Hilmars er öryrki og hefur glímt við andleg veikindi lengi og að sögn Lilju Rafneyjar hefur stundum gengið vel og stundum ekki. Hann er grunaður um aðild að andláti föður síns og er í gæsluvarðhaldi. Vísir greindi frá í morgun.Rannsókn málsins sten
Óska eftir friði til að syrgja á meðan rannsókn á andláti er ólokið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd