Íslenskur maður var í gær úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 28. ágúst í tengslum við rannsókn lögreglu á manndrápi á Kársnesi. Þetta staðfestir Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.Erlendur ríkisborgari sem var í haldi vegna málsins var látinn laus 21. ágúst. Tveir til viðbótar eru enn í gæsluvarðhaldi vegna málsins, annar á Spáni og hinn í Póllandi.Pólskur karlmaður á fimmtugsaldri lést 9. ágúst síðastliðinn. Hann var fyrir utan hús við Vallargerði í Kópavogi þegar lögreglu bar að garði og lést af sárum sínum á sjúkrahúsi. Samkvæmt heimildum fréttastofu var hann stunginn og sýru skvett á hann.Heimildir fréttastofu herma að lögregla telji málið tengjast skipulagðri brotastarfsemi og Europol hefur aðstoð