Uppgangur var í flestum helstu atvinnugreinum landsins í maí og júní þegar þær eru bornar saman við stöðuna á sama tíma i fyrra.25 prósenta vöxtur var í sjávarútvegi og fiskeldi og upplýsingatækni og fjarskiptum og 22 prósenta vöxtur í framleiðslu málma. Annað var þó uppi á teningnum í bílasölu sem dróst saman um tíu prósent og ferðaþjónustu þar sem veltan minnkaði um þrjú prósent.Sjávarútvegur dafnaði með 29 prósenta veltuaukningu. Hærra heimsmarkaðsverð á áli skilaði sér í auknum tekjum þrátt fyrir að lítið eitt minna væri flutt út í fyrra.Velta jókst umfram verðbólgu í helmingi atvinnugreina.