Fyrirtæki sem þurfa að losa sig við úrgang hafa nú fengið nýjan valkost á höfuðborgarsvæðinu. Terra hefur opnað nýja móttökustöð að Berghellu 1 í Hafnarfirði þar sem fyrirtæki geta komið sjálf með úrgang til flokkunar og losunar. Markmiðið er einfalt: Minni biðtími, einfaldari verðlagning og sanngjarnara verð.