Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur rutt úr vegi lagalegri hindrun sem stóð í vegi fyrir tilraunum forsetans til að takmarka hverjir megi í kosningum senda atkvæði sitt með pósti. Nokkrir bandarískir miðlar kalla niðurstöðuna áfangasigur fyrir Donald Trump sem í apríl undirritaði forsetatilskipun um hertar reglur fyrir póstkosningar. Það telur hann geta komið í veg fyrir kosningasvindl og að fólk sem ekki hafi kosningarétt nýti sér hann. Nokkur ríki höfðuðu mál til að fá tilskipuninni hnekkt og nú hefur meirihluti Hæstaréttar úrskurðað að þau skorti lagalegan grundvöll til að vefengja tilskipun forsetans. Dómararnir tóku ekki afstöðu til þess hvort tilskipunin væri lögmæt í sjálfu sér. Enn er mjög óljóst hvaða áhrif þessi úrskurður hefur á notkun póstatkvæða í þingkosningum í nóvember, þar sem