Talsverð skjálftavirkni er út af Reykjanestá.RÚV / Ragnar VisageJörð hefur haldið áfram að skjálfa í nótt nærri Reykjanestá. Nokkrir skjálftar hafa mælst milli tveir og þrír að stærð og einn 3,4 núna skömmu fyrir klukkan sex og annar af stærðinni 4,1. Stærsti skjálftinn í nótt mældist af stærðinni 4,5 laust eftir klukkan hálf fjögur. Á samfélagsmiðlum má sjá að einhverjir fundu fyrir þeim skjálfta í Reykjanesbæ. Náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands sagði í samtali við fréttastofu að skjálftarnir kæmu til af völdum flekahreyfinga og að viðlíka hrinur væru algengar á þessum slóðum.