Mikið ölvaður farþegi strætisvagns var handtekinn eftir að hann reyndi að kýla einn og hellti bjór yfir annan farþega. Í dagbók lögreglunnar segir að maðurinn hafi verið „víðáttuölvaður“ og einnig hafi meint fíkniefni fundist í farangri hans. Lögreglumenn sögðu það ekki í sínum verkahring að aðstoða leigjanda við að leita sér læknisaðstoðar vegna áfengissýki að beiðni leigusala. Hann hafði kallað eftir aðstoð þar sem leigjandinn væri til vandræða. Stutt en hröð eftirför endaði við lögreglustöðina við Hverfisgötu. Ökumaðurinn hafði ekki sinnt kröfu lögreglu um að nema staðar, ekið yfir hámarkshraða og gegn rauðu ljósi. Annar ökumaður var sviptur ökuréttindum fyrir að aka á 157 kílómetra hraða þar sem hámarkshraðinn er 80 og stjórnanda skellinöðru bíður sekt fyrir glæfraakstur um götur og ga