Eldflaug laskaði olíuflutningaskip á Hormússundi

Olíu- og flutningaskip í Ómanflóa.AP / UncreditedEldflaug hæfði olíuflutningaskip á siglingu um Hormússund undan ströndum Óman. Nokkrar skemmdir urðu á vélarrúmi skipsins en engan úr áhöfninni sakaði samkvæmt upplýsingum Siglingamálastofnunar breska flotans. Þar segir að tilkynning hafi borist frá skipstjóra olíuflutningaskipsins þessa efnis og að sigling þess hafi verið stöðvuð vegna skemmda á vél. Ekki er enn vitað hver skaut flauginni.
Eldflaug laskaði olíuflutningaskip á Hormússundi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd