Fjölskyldur 146 venesúelskra flóttamanna sem fórust í jarðskjálftunum sem riðu yfir strandhéraðið La Guaira fyrir réttum tveimur mánuðum krefjast afsökunarbeiðni frá stjórnvöldum.Fólkinu var komið fyrir í gömlu og lélegu húsnæði í strandríkinu La Guaira örfáum klukkustundum áður en skjálftarnir riðu yfir. Stjórnvöld segja það hafa verið 120 karlmenn, 19 konur og sjö börn. Fólkið var svipt eigum sínum og farsímum og þess rækilega gætt af útsendurum leyniþjónustunnar. Oswadelis Nunez segir í samtali við AFP óskiljanlegt að 29 ára gamall sonur hennar sem lést hafi verið handtekinn auk þess sem hún segir stjórnvöld hafa komið í veg fyrir að fólkið gæti forðað sér úr byggingunni.Hún segir ættingja þeirra sem létust krefja stjórnvöld bóta, afsökunarbeiðni og skýringa á framferði sínu við fólkið.