Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir það skýrt af hálfu forystu ríkisstjórnarinnar að það sé skilyrði að Ísland nái skýrri niðurstöðu varðandi bæði sjávarútveg og landbúnað ef til aðildarviðræðna við Evrópusambandið kemur.Hún segist meðal annars vera vongóð um að samningar geti náðst sem standi vörð um hagsmuni Íslands í sjávarútvegi.„Það eru breyttir tímar. Heimsmyndin er breytt og Evrópusambandið er gjörbreytt frá því fyrir fimmtán árum þegar Ísland lagði af stað í þennan leiðangur. Þetta eru raunverulegar samningaviðræður og það verður tekið tillit til sérstöðu Íslands, ekki síst á sviði sjávarútvegs- og landbúnaðar sem er eitthvað sem við höfum lagt sérstaka áherslu á,“ segir Þorgerður sem var gestur í Kastljósi í kvöld.„Munurinn núna og síðast er að Bretland er farið