Vona að kjötmjöl geri gæfumuninn á Hólasandi

Kjötmjöli verður dreift á um þúsund hektara lands í sumar til að græða upp auðnir. Sérfræðingar hjá ríkisstofnuninni Landi og skógi segja áburðinn hafa gefið góða raun sunnanlands og nú er í fyrsta sinn dreift í stórum stíl norðan heiða.Þorlákur Páll Jónsson, vélamaður hjá Landi og skógi, er búinn að fara hring eftir hring og fram og til baka á dráttarvélinni í sumar, eins og sést á mynstrinu sem hann hefur skilið eftir sig á Hólasandi, sandflæminu milli Mývatns og Húsavíkur.Sérfræðingar hjá Landi og skógi binda vonir við kjötmjölsdreifingu til Landgræðslu. Áburðurinn hefur reynst vel á Suðurlandi og nú hefur hundrað tonnum verið dreift yfir Hólasand.Í dreifaranum er kjötmjöl, fíngerður lífrænn áburður sem er unninn úr afskurði úr sláturhúsum. Verkefni Þorláks þetta sumarið er að skilja ef
Vona að kjötmjöl geri gæfumuninn á Hólasandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd