Aukin gagnrýni hefur heyrst í garð samfélagsmiðilsins TikTok og kallað hefur verið eftir því að fyrirtækið grípi til aðgerða vegna efnis á miðlinum sem er sagt hvetja börn og ungmenni til hegðunar sem getur haft skelfilegar afleiðingar eða beinlínis ýtt undir óhæfuverk.