Hópur skólaliða í Reykjavík hefur fengið uppsagnarbréf og störfum þeirra hefur verið útvistað. Formaður Sameykis segir borgina ekki í neinum takti við raunveruleikann.Eitt af áhersluverkefnum meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks sem tók við í vor var hagræðing.Á verkefnalista meirihlutans er m.a. að fækka millistjórnendum, innleiða áhættustýringu, auka skilvirkni, fylgjast betur með útgjöldum, setja stjórn yfir eignasafn borgarinnar og hagræða um milljarð á ári.Borgin hefur sagt upp hópi skólaliða og útvistar störfum þeirra. Formaður Sameykis segir þetta eins og olíu á eldinn í kjaramálunum.Reykjavíkurborg er stærsti vinnustaður landsins. Þar starfa um 11.000 og Kári Sigurðsson, formaður stærsta stéttarfélagsins, Sameykis, sem er með um 6.000 borgarstarfsmenn, segir