Maðurinn sem Jökulsá á Brú, í Stuðlagili á Jökuldal, fyrr í dag er enn ófundinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kristmundi Stefáni Einarssyni, lögreglustjóranum á Austurlandi.Í tilkynningunni segir að leitinni verði haldið áfram þar til viðkomandi finnst en að dregið verði úr henni þegar myrkva taki í kvöld. Henni verði framhaldið af fullum krafti þegar birti í fyrramálið.Að aðgerðum koma m.a. lögregla, björgunarsveitir, sérsveit ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæslan, Rauði krossinn, sjúkralið og slökkvilið. Frekari upplýsingar er ekki hægt að gefa að svo stöddu, segir í tilkynningunni.