Alvotech er að nálgast „mikilvægan vendipunkt“ eftir margra ára uppbyggingu þar sem áhersla fjárfesta færist frá eftirlitsáhættu tengdri FDA yfir í markaðssetningu nýrra lyfja og tekjuvöxt, að sögn greinenda Bank of America, sem mæla með kaupum í frumskýrslu sinni um félagið. Hlutabréfaverð Alvotech rauk upp á markaði í dag en greinendur bandaríska bankans telja að næsta bylgja nýrra hliðstæðulyfja frá félaginu geti reynst verðmætari en þau sem hafa áður komið á markað.