Forna borgin Yazd er kölluð hjarta gullna þríhyrningsins svokallaða í Íran. Gullni þríhyrningurinn tengir saman þrjár sögufrægar borgir, Yazd, Shiraz og Isfahan. Yazd er á heimsminjaskrá UNESCO og ferðamenn frá öllum heimshornum flykktust þar að. Nú eru fáir á ferli á götum borgarinnar og hótelin tóm.Mehdi Mirzaei, eigandi hótels í borginni, segir nýleg stríð í landinu hafa haft mikil áhrif á erlenda ferðaþjónustu. „Og ástandið er ekki að batna. Margir samstarfsmenn okkar eru í örvæntingarfullri stöðu og eiga erfitt með að afla sér tekna yfirhöfuð.“Hótel voru mörg hver uppbókuð marga mánuði fram í tímann, en eftir tólf daga stríðið í júní í fyrra milli Írans og Ísraels og stríðið sem hófst með loftárásum Bandaríkjamanna og Ísraela fyrir nærri sex mánuðum er öldin önnur.