„Mér líst vel á það en það er óþægilegt því maður er svo vanur hinu og maður er að fara í 10. bekk, sem er svo mikilvægur,“ segir Kristrún Áróra Eydísar- og Diðriksdóttir, 10. bekk Seljaskóla, um nýja námsmatskerfið sem hefur verið gagnrýnt af kennurum og skólastjórnendum.„En ég er bara að reyna að komast í menntaskóla og svo lengi sem maður fær fínar einkunnir þá er þetta allt í lagi,“ bætir hún við.„Ég veit ekki mikið um þetta strax. Við fengum ekki mikla útskýringu á þessu. Ég er svolítið óvön þessu en vonandi verður þetta bara frekar gott,“ segir Freydís Guðjónsdóttir, 10. bekk Seljaskóla.„Það er óþægilegt að þegar maður er orðinn vanur öðru námskerfi og öðruvísi einkunnum þá er frekar skrítið þegar 10. bekkur skiptir svo miklu máli að breyta því,“ segir Maía Gunnarsdóttir, 10. bekk Se