Ráða fólki frá því að ganga Fimmvörðuháls

Útivistarfélögin Ferðafélag Íslands og Útivist og Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli vara fólk við hættulegum aðstæðum á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls. Þau ráða fólki eindregið frá göngu yfir fjallið.Þetta kemur fram í tilkynningu frá félögunum.Gil og sprungur hafa opnast á leiðinni síðustu ár samhliða því að jökullinn hefur hopað. Einnig hafa myndast brattar brekkur og skriður á hluta leiðarinnar milli Baldvinsskála og Fimmvörðuhálsskála þar sem áður var snjór eða jökulís.Einnig hafa komið í ljós snjóbrýr þar sem snjó vetrarins hefur tekið upp. Undir þeim renna jökulár. Í tilkynningu félaganna segir að mjög hættulegt geti verið að fara yfir jökulbrýrnar eða nálgast þær.Fréttin var uppfærð eftir að félögin breyttu ráðleggingu sinni.
Ráða fólki frá því að ganga Fimmvörðuháls

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd