Óvissa um hvenær aðalmeðferð í Reykholtsmálinu heldur áfram

Óvíst er hvort aðalmeðferð í svokölluðu Reykholtsmáli heldur áfram á miðvikudag eða fimmtudag. Sjötta degi aðalmeðferðar lauk í dag þar sem læknar og starfsmenn lögreglu gáfu skýrslur.Sex Íslendingar, fimm karlar og ein kona, eru ákærð fyrir að halda manni föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og beita hann harkalegu ofbeldi til þess að hafa af honum fé í apríl 2024.Vonast var til að skýrslutökum lyki í dag. Fjórar skýrslur eru þó eftir sem taka á af þremur maltneskum læknum og íslenskum sálfræðingi. Að því loknu fer málflutningur fram. ERFIÐLEGA GEKK AÐ HEYRA Í MALTNESKA LÖGREGLUMANNINUM Lögreglumaður frá Möltu gaf skýrslu um aðkomu sína að málinu. Hann sagði að hann hefði fengið tilkynningu um klukkan þrjú um nóttina að maður hefði verið vistaður á sjúkrahúsi vegna líkams
Óvissa um hvenær aðalmeðferð í Reykholtsmálinu heldur áfram

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd