Leit stendur enn við Stuðlagil

Leit stendur enn að manni sem féll Jökulsá á Brú, í Stuðlagili á Jökuldal, eftir hádegi. Það staðfestir Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austurlandi, sem segist að öðru leyti engar upplýsingar geta veitt umfram það sem fram kom í tilkynningu lögreglu fyrr í dag.Lögreglu barst tilkynning um að maður hefði fallið í Jökulsá á Brú í Stuðlagili klukkan 13:15. Þyrla Landhelgisgæslunnar og fjölmennt björgunarlið var strax kallað út og er enn við leit.Maðurinn sem féll í ána er, samkvæmt heimildum fréttastofu, ferðamaður sem var með hópi við gilið þegar slysið varð.Aðgengi að gilinu er takmarkað á meðan leitað er. Áin er tær sem stendur þar sem Hálslón er ekki komið á yfirfall og því ekki jökulvatn í henni.
Leit stendur enn við Stuðlagil

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd