„Þetta rétt gekk,“ skrifar móðir í aðsendri grein á Vísi er hún lýsir þreytu eftir sumarfrí skólanna, þar sem foreldrar hafi átt í ströngu við að finna börnum sínum eitthvað að gera á daginn og keppst um pláss á sumarnámskeiðum. Eftir „skítamixsumarið mikla“ segir hún að skólabjallan hafi sjaldan hljómað eins undursamlega að hausti. Hún spyr hvort sumarfrí frá skólum þurfi virkilega að vera tíu og hálf vika enda sé það styttra í nágrannalöndum.