35 þúsund hafa greitt atkvæði – búið að lengja opnunartíma hjá sýslumanni

Um 35 þúsund hafa kosið utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við ESB hjá sýslumönnum, í sendiráðum og hjá ræðismönnum. Þar af eru rúmlega 23 þúsund kjósendur á höfuðborgarsvæðinu.Sigríður Kristinsdóttir sýslumaður segir kjörsókn betri en í alþingis- og forsetakosningunum 2024. Hún telur að kjörsókn verði svipuð og í forsetakosningunum 2020 þegar 40 þúsund kusu utan kjörfundar á höfuðborgarsvæðinu.„Út þessa viku verður opið í Hlíðarsmára til klukkan níu alla daga fram að kjördegi. Við opnum þar klukkan tíu. Síðan er opið í Kringlunni frá klukkan tólf til hálf sjö alla daga fram að kosningum.Og hafa margir lagt leið sína þangað til að kjósa?„Já, mjög margir. Þetta var meira hérna í Kringlunni um helgina. Þetta hefur verið svona frekar jafnt á milli Kringlu og Hlíðars
35 þúsund hafa greitt atkvæði – búið að lengja opnunartíma hjá sýslumanni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd