Ríkissaksóknari hefur fellt úr gildi þá ákvörðun embættis héraðssaksóknara að ákæra ekki svokallaðan skutlara fyrir líkamsárás. Sá hlaut dóm fyrir að áreita stúlku kynferðislega áður en aðstandandi stúlkunnar veittist að honum. Skutlarinn er sakaður um að hafa barið aðstandandann í höfuðið með spýtu í átökum þeirra.