Bandaríkjaforseti vill tvöfalda tolla á kanadísk ökutæki. Ekki sér fyrir endann á deilum Bandaríkjanna og Kanada um tollamál sem hafa færst í aukana að undanförnu.„Frá og með 1. janúar 2027 verða tollar á alla bíla og vörubíla, stóra sem smáa, auk bílavarahluta og stáls, hækkaðir í 50 prósent,“ skrifaði Donald Trump forseti Bandaríkjanna á samfélagsmiðli sínum Truth Social í dag.Bandaríkin leggja nú 25 prósenta toll á þann hluta kanadískra ökutækja sem ekki er framleiddur í Bandaríkjunum og 50 prósenta tollar eru almennt lagðir á innflutt stál.Á föstudag slitnaði upp úr viðræðum ríkjanna tveggja um tollasamning. Hvorir sögðu hina hafa á síðustu stundu sett skilmála sem ekki var hægt að samþykkja.Þetta leiddi til þess að nýir tollar Bandaríkjanna á kanadískar vörur, sem áttu að taka gildi á