Bónus tekur pastahillurnar í gegn og hyggst bjóða fleiri tegundir í öllum verðflokkum. Barilla og Himneskt hverfa úr hillunum í bili en í staðinn koma meðal annars fleiri ódýrar tegundir, ítalskt úrvalspasta, lífrænt pasta, heilhveitipasta, glútenfrítt pasta og próteinpasta.