Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, segir farir sínar ekki sléttar, eftir misheppnaðar vegaframkvæmdir á veginum um Kaldármela á Snæfellsnesi í síðustu viku. Hann segir að klæðning sem var lögð á kafla vegarins á fimmtudag hafi þegar verið orðin holótt þegar hann átti aftur leið um veginn á sunnudag.Hann mun, ásamt Unni Brá Konráðsdóttur, sveitarstjóra Borgarbyggðar, funda með forstjóra Vegagerðarinnar á þriðjudag til að ræða framkvæmdina og nauðsynlegar úrbætur.Kristinn lýsir því í samtali við fréttastofu að hann hafi furðað sig á því þegar hann átti leið um veginn á fimmtudag að klæðningarflokkur væri þar í startholunum. Bæði hefði vegurinn verið óheflaður og auk þess rigning í kortunum.„Mér finnst þessi vinnubrögð alveg óboðleg,“ segir Kristinn en bætir við að hann þekki verkt