Stjórnvöld í Ísrael hafa fyrirskipað niðurrif fjölda palestínskra skóla á hernumda Vesturbakkanum. Til stendur að rífa niður skólana og reisa landtökubyggðir í staðinn. Nemendur segjast lifa í stöðugum ótta um að hver skóladagur verði sá síðasti.Í frétt norska ríkisútvarpsins NRK er greint frá raunum Sadeel Shatat, sextán ára gamallar stúlku frá Palestínu. Hún gengur í Zeif-stúlknaskólann í Masafer Yatta, í suðurhluta Hebron-héraðs á hernumda Vesturbakkanum.Shatat segist aldrei hafa upplifað heilan skóladag án þess að velta fyrir sér hvort hann sé hennar síðasti.„Skólinn okkar er byggður úr hjólhýsum og lítur kannski út fyrir að vera ómerkilegur, en fyrir okkur skiptir hann afar miklu máli,“ segir Shatat í samtali við NRK.Um 250 nemendur eru í Zeif-stúlknaskólanum. Hann er sá eini á svæðin