Leiðtogar stjórnarandstöðunnar í Kanada hafa kallað eftir því að Mark Carney, forsætisráðherra, opinberi þau samningsdrög sem lágu fyrir í viðræðunum við Bandaríkin. Kanadamenn neituðu að skrifa undir samninginn og í kjölfarið setti ríkisstjórn Donalds Trump umfangsmikla tolla á vörur frá Kanada en Carney hafði varað við aðgerðum sem þessu í ræðu í Davos fyrr á árinu.